Nú hefur umhverfisráðherra lagt fram frumvarp sitt um Hálendisþjóðgarð sem tekur til stofnunar þjóðgarðs á hálendi Íslands, á landsvæði sem er sameign þjóðarinnar.
Verði frumvarpið að lögum verður til nýr þjóðgarður sem nær yfir um þrjátíu prósent af flatarmáli Íslands. Hér er um veigamikla stefnubreytingu í landnotkun að ræða því hátt í 70% af raforkuframleiðslu þjóðarinnar í dag er upprunnin innan marka fyrirhugaðs hálendisþjóðgarðs.
Í stóru myndinni, fyrir okkur Íslendinga, snýst málið um það hvort breyta eigi landnotkun hálendisins þannig að lokað verði fyrir nýtingu þjóðarinnar á orkuauðlindum hálendisins um alla framtíð.
Orkuskiptum og orkuöryggi Íslands ógnað
Hafa ber i huga að landið okkar býr í raun yfir takmörkuðum orkuauðlindum, sér í lagi þegar um er að ræða vatnsföll og háhitasvæði. Það er því auðvelt, ef við ekki gætum okkar, að ganga hratt á möguleika þjóðarinnar til að vera sjálfbær til framtíðar hvað varðar orkuöflun fyrir samfélagið. Það er því mikið áhyggjuefni að það eigi að taka svona stóra ákvörðun sem Hálendisþjóðgarður er, án þess að hugað sé að framtíðar orkuþörf og orkuöryggi þjóðarinnar.
Þarf að ganga svona langt?
Það er þekkt erlendis að þjóðgarðar séu flokkaðir í svæði þar sem mismikil friðun á sér stað, allt eftir verðmætamati þeirrar náttúru sem friða á og þörfum viðkomandi þjóða fyrir atvinnustarfsemi og hagnýtingu auðlinda á þeim svæðum, þar með talið orkuauðlinda. Ísland er þekkt um allan heim fyrir árangur sinn á sviði endurnýjanlegrar orkuframleiðslu. Hvers vegna ætti Hálendisþjóðgarður ekki að endurspegla þetta sérkenni þjóðarinnar og vera fyrirmynd um hversu vel græn orkuframleiðsla og náttúruvernd geta farið saman ?
Frumvarp umhverfisráðherra um Hálendisþjóðgarð felur í sér að allt hálendið verði sett í mjög strangan verndarflokk. Það sama mun þá eiga við um núverandi Vatnajökulsþjóðgarð. Þetta mun takmarka mjög möguleika á nýtingu á gæðum hálendisins fyrir alla aðra starfsemi en þá sem beint lítur að rekstri þjóðgarðsins. Þetta mun hafa neikvæð áhrif á þá sem nýtt hafa hálendið hingað til og mun takmarka framtíðartækifæri þjóðarinnar í þeim efnum. Með frumvarpinu er gengið á rétt útivistarfólks og má segja að enginn hópur nýti sér hálendið meira en vélsleða, göngu, skíða og jeppafólk. Svo virðist sem ekki hafi verið hlustað á áður nefnda hópa þar sem mikil þekking og reynsla býr. Þessi hópur á rétt á sama aðgengi og aðkomu og náttúruverndarfólk að hálendi Íslands. Enn fremur mun þetta hamla því að hægt sé að viðhalda og styrkja innviði, bæði vegi og flutnings- og dreifikerfin sem nú eru innan marka fyrirhugaðs þjóðgarðs, þar með talið byggðarlínuna, sem hefur það hlutverk að tryggja öllum landsmönnum öruggt aðgengi að rafmagni.
Þingflokkur Framsóknarflokksins hefur sett ýmsa fyrirvara við frumvarp umhverfisráðherra, sem snúa m.a. að stærðarafmörkun þjóðgarðsins, valdsviði umdæmisráða, réttindi til nytjar, samgöngnum innan og í gegnum garðinn og möguleikum til framtíðar orkunýtingar. Það er afar mikilvægt að vanda til verka þegar um svona stórt mál er að ræða. Virða rétt þeirra sveitarfélaga sem nú hafa skipulagsvald á svæðinu svo ekki sé minnst á rétt almennings til að njóta íslenskrar náttúru. Við skulum vona að ráðherra doki við. Hugsi sinn gang og endurskoði frumvarp sitt. Geri tilraun til að ná sátt um það meðal þjóðarinnar. Því hálendið er eign okkar allra. Það er réttmætt og eðlilegt, þegar svo mikið er í húfi sem hér, að benda löggjafanum á ofangreint svo þingmenn taki ákvörðun um breytta landnotkun hálendisins með „opin augu“ og með framtíðarkynslóðir Íslendinga í huga.