Neyðarbirgðir olíu

Ingibjörg Isaksen skrifar – birtist í Fréttablaðinu 10. febrúar 2023

Nýlega kynnti Guðlaugur Þór umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra í samráðsgátt stjórnvalda áform um frum­varp til laga um neyðar­birgðir elds­neytis. Neyðarbirgðir eru mikilvægar ef skyndilega röskun verður á olíuframboði. Sam­kvæmt frum­varpinu er á­formað að leggja skyldu á sölu­aðila elds­neytis að þeir við­haldi jarð­efna­elds­neytis­birgðum sem jafn­gildi notkun til 90 daga. Sam­kvæmt frum­varpinu verður birgða­skyldan inn­leidd í nokkrum skrefum yfir nokkurra ára tíma­bil. Í dag er enginn aðili sem ber ábyrgð á því að til staðar séu neyðarbirgðir á eldsneyti á landinu og þá er heldur enginn krafa til staðar á stjórnvöld eða atvinnulíf til þess að tryggja birgðir sem þessar.

Setjum ekki öll eggin í sömu körfuna

Líkt og við höfum orðið óþægilega vör við síðustu misseri geta fljót skipast veður í lofti, eldgos, heimsfaraldrar og stríð geta valdið aðstæðum þar sem lífsnauðsynlegar vörur verða af skornum skammti, en nægt framboð af olíu er forsenda öryggis á fjöldamörgum sviðum. Ef ekki er gætt að neyðarbyrðum olíu gæti fljótt stefni í óefni í samfélaginu. Markmið okkar til framtíðar er auðvitað að verða óháð jarðefnaeldsneyti hérlendis en enn er nokkuð í að þeim markmiðum verði náð, þangað til  þurfum við að hafa tiltækar nægar olíubirgðir hér á landi.

Undirrituð telur þörf á því að skoða verði af fullri alvöru við þessa vinnu sem og aðrar er snúa að neyðarbirgðum, að hugað sé að því að koma fyrir birgðum fyrir á fleiri en einum stað á landinu. Undirrituð telur mikilvægt að komið verður fyrir birgðastöð á að lágmarki tveimur stöðum á landinu, hér fyrir sunnan og einnig til dæmis fyrir norðan. Við vitum aldrei hvaða aðstæður geta skapast í samfélaginu. Hér er ég ekki síst að horfa til flugvélaeldsneytis, við þurfum að vera við því búin að þannig aðstæður skapist á SV horninu að flugvellir lokist, eldgos á Reykjanesi eru ágætis áminning um það og því þurfum við að vera tilbúin að beina flugi á aðra velli á landsbyggðinni.

Stöðugleiki um allt land

Neyðarolíubirgðir geta ekki bara skipt máli vegna samgangna heldur getur einnig þurft að nýta þær við hamfarahjálp svo sem við að knýja rafstöðvar o.s.frv. Því er mikilvægt að hafa ekki öll eggin í sömu körfunni ef samgöngur rofna á milli landshluta. Ég fagna þeirri vinnu sem ráðherra hefur sett af stað og hvet hann áfram til góðra verka. En mikilvægt er að hafa það hugfast að með því að tryggja öllum landsmönnum auðvelt aðgengi að neyðarbirgðum má betur viðhalda stöðugleika og öryggi þjóðarinnar.

Ingibjörg Isaksen

Þingflokksformaður Framsóknar og fyrsti þingmaður NA kjördæmis