Eitt af aðaláherslumálum í meirihlutasamningi bæjarstjórnar Akureyrarbæjar er að bæta kjör og hag barnafólks á Akureyri. Ein af meginleiðunum til að ná þessu markmiði er að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla með fjölbreyttum hætti. Ein af þeim leiðum er opnun leikskólans Árholts sem tekur að nýju til starfa í dag mánudaginn 2. september 2019.
Saga skólahalds í húsnæðinu sem nú hýsir leikskólann Árholt hófst árið 1937, en þá fluttist þangað starfsemi barnaskólans að Ósi við Óseyri, sem þá hafði starfað þar frá árinu 1908. Glerárskóli var starfræktur í húsnæðinu til ársins 1972 er hann flutti í núverandi húsnæði. Í skólanum voru þrjár skólastofur og yfirleitt um 100 nemendur.
Í júní árið 1974 hefst saga leikskólahalds í Árholti en þá var skólinn tvískiptur og rúmaði 40-45 börn í einu eða 80-90 börn á dag. Leikskóli var rekinn í húsnæði Árholts til ársins 2003 er honum var lokað og rekstur hans færður í nýjan leikskóla í Naustahverfi.
Eftir að skólahaldi lauk í húsnæðinu var það nýtt meðal annars sem skólavistun og frístund fyrir börn með fötlun úr grunnskólunum og síðar skammtímavistun. Síðasti leigjandi húsnæðisins var Akureyrarakademían, sem flutti út nú á vordögum 2019 er Lautin, 5 ára deild frá Tröllaborgum sem staðsett hafði verið í Glerárskóla, flutti inn í Árholt vegna endurbóta á húsnæði Glerárskóla. Viljum við nýta tækifærið og þakka Akureyrarakademíunni fyrir góð viðbrögð við beiðni bæjarins um flutning með starfsemi sína.
Í sumar voru gerðar endurbætur á húsnæðinu með það að markmiði að búa það undir að taka við yngsta aldursári leikskólabarna. Fyrsta árið verða 12 – 14 börn í leikskólanum en stefnt er að því að þar verði tvær deildir fyrir 24 börn, sem þjóni eingöngu yngsta aldursári leikskólabarna.
Ljóst er að margir gleðjast yfir því að leikskóli sé aftur tekinn til starfa í Árholti, nú sem ein deild Tröllaborga enda margir sem eiga góðar minningar þaðan hvort heldur sem nemendur, kennarar eða foreldrar.
Markmið Akureyrarbæjar er að skapa möguleika fyrir foreldra að innrita börn sín í leikskóla að loknu fæðingarorlofi. Með þessu skrefi má segja að hafin sé sú vegferð að bjóða upp á innritun yngri barna í leikskóla Akureyrarbæjar en í ár eru mánuði yngri börn inn í leikskólum bæjarins en áður hefur verið.
Höfundur er bæjarfulltrúi og formaður fræðsluráðs Akureyrarbæjar.